Ágæti félagsmaður.
Aðildarfélög Samflots, FOSA, Fos-Vest., SDS, St. Fjallabyggð, St. Fjarðabyggð, STAVEY og St. Húsavíkur, leita nú til félagsmanna sinna með vandaða viðhorfskönnun um kröfur og önnur helstu atriði í komandi kjarasamningum.
Félögin, í samvinnu með öðrum bæjarstarfsmannafélögum, eru að vinna að kröfugerð fyrir komandi kjarasamninga við sveitarfélög og ríki og mun þitt svar hafa áhrif á þá vinnu.
Einnig er spurt um annað, s.s. líðan í starfi, um starfsumhverfi og launakjör, um afstöðu til stéttarfélags og um sameiningu stéttarfélaga ásamt öðru. Það er fyrirtækið Zenter-rannsóknir sem sér um þessa könnun fyrir okkur og vinnslu úr henni og þátttaka tekur um 7 til 9 mínútur.
Stjórn Starfsmannafélag Fjallabyggðar hvetur félagsmenn til að taka þátt í þessari könnun sem verður send innan fárra daga á netfang félagsmanna og hægt er að svara á netinu.
Eftir að könnun lýkur verða dregin út nöfn þriggja svarenda sem fá hver um sig 20 þúsund króna gjafabréf.
Ef einhver les þetta og telur sig vera félagsmann í St. Fjallabyggðar og hefur ekki fengið könnun senda, þá er sá hinn sami hvattur til að hafa samband við formann.
Með von um góða þátttöku félagsmanna.
Guðbjörn Arngrímsson
formaður St. Fjallabyggðar
S: 899-6213