Aðalfundur Starfsmannafélags Fjallabyggðar fyrir árið 2014 verður haldinn í húsi Félags eldri borgara, fimmtudaginn 11. júní 2015, kl: 17.00 stundvíslega.
DAGSKRÁ:
1. Fundur settur.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Lagðir fram reikningar félagsins.
4. Stjórnarkjör, skv. 6. gr. laga félagsins.
5. Kosnir endurskoðendur skv. 6. gr. laga félagsins
6. Kosið í nefndir á vegum félagsins.
7. Orlofsmál.
8. Komandi kjarasamningar
9. Dregið í happadrætti úr hópi þeirra sem mæta á fundinn.
10. Önnur mál.
Á fundinum verða kaffiveitingar.
Félagar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega.
Stjórnin